Við fórum í ferð til Þýskalands um mánaðarmótin okt-nóv. Vorum nokkur saman og fórum víða. Hittum Marie aðeins og sýndi hún okkur Wisenhof. Hér erum við að heilsa upp á Gust frá Grund ásamt Marie og núverandi eiganda Gusts. Gustur lét ekki trufla sig frá kvöldmatnum.
|
Við fáum stundum sendar myndir frá þeim sem hafa keypt hross frá okkur.Þessi er af væntanlegum félögum Össu Gammsdóttur. Assa á að fara til Þýskalands í desember og fer í einangrunarhólfið sem Prins var í en hann flaug til Þýskalands þann 26.okt. Við rekum heim í byrjun nóvember til að sortera og undirbúa fyrir veturinn.
|
Það hefur verið nóg að gera frá því um stóðréttir, mest í kring um kindurnar. Nú eru Pia og Stjörnunótt farnar í áframhaldandi tamningu hjá Ísólfi á Lækjamóti og Álfrún fer svo fljótlega. Pia með sinn fótaburð ætti að geta orðið flott. Myndir af henni eru á sölusíðunni. Þessa mynd úr stóðréttinni fengum úr myndasafninu á Hvammstangablogginu. Takk Hlynur!
|
Skemmtileg stóðréttarhelgi að baki og allir gestir farnir , bæði menn og hross. Fengum frábæra hjálp við að reka heim. 10 manns unnu verkið í sameiningu og hér er hluti rekstarmanna að ríða í hlað. Munur eða þegar við erum tvö að glíma við verkefnið. Takk fyrir komuna og hjálpina.
|