Góa hefur verið þeysin svo það hlýtur að vora vel. Undanfarið hefði verið betra að hafa reiðhöll því óþarflega oft hefur veðrið komið í veg fyrir útreiðar. Kosturinn við þessa vetrartíð er að Ingvar hefur gefið sér tíma til að sinna viðhaldinu.
|
Við erum léleg að taka þátt í keppi þó nóg sé framboðið. Það er ekki gott því auðvitað er betra að hrossin komi einhvers staðar fram. Þessi ungi knapi heitir Herdís og fékk hún Sóldögg lánaða í fimmgangskeppni um daginn. Stóðu þær sig vel en þær hittust fyrst korteri fyrir mót og höfðu því lítinn tíma til að kynnast.
|
Mars hefur heilsað með frosti og smá snjó. Þegar þannig háttar fá hross á járnum stundum að fara út í hólf að viðra sig í stað þess að vera í gerðinu. Það er alltaf mikil ánægja þegar þau fá að hlaupa út í hólf, rassaköst og læti en hér eru þau farin að róast. Öll 8 stykkin sem eru inni hjá okkur núna stilltu sér upp í röð.
|
Pía er komin heim út töltnáminu og gekk það bara vel. Nú töltir hún og brokkar eftir pöntun með sínum flotta fótaburði. Það gengur aðeins hægar hjá Stjörnunótt að nema töltfræðin en gengur þó. Hér eru þær Árborg að byrja töltæfingar dagsins og á eftir fær Stjörnunótt sitt nudd. Það virðist gera henni gott og nýtur hún þess að slaka vel á.
|